31.3.04

ég ákvað að skreppa í "sveitina" í sona 1 dag áður en ég byrja að lesa fyrir prófin. hildigunnur var í göngutúr og kom til mín með hana helenu sína. og svo löbbuðum við saman niður í bæ og skoðuðum í búðirnar á hafnargötunni. ekkert smá langt síðan ég hef labbað hafnargötuna....því það eru komnar einhverjar nýjar búðir eins og
undirfataverslunin ég og þú. og svo er mangó og töff flutt....allt að gerast!!! en svo löbbuðum við til hennar í njarðvík.....engin smá ganga alveg heiman frá mér, niður í bæ og svo í njarðvík. held bara að ég hafi ekki labbað sona mikið síðan ég fékk bílpróf ;) en já ég kom við á art-húsinu og ætlaði að reyna að fá tíma í klippingu fyrir páska. en það er bara laust þegar þjó prófið er. þannig að klippingin sem er sko löngu kominn tími á, verður ekki fyrr en eftir páska :( (það eiga sko allir í kef sína hárgreiðslukonu og maður fer yfirleitt ekki til annarrar) og þá er brjálað að gera 3 próf. þannig að ég verð að bíða með klippingu þangað til eftir 19.apríl.....arrrrgg!!!! ég verð orðin brjáluð..ég sé varla útundan mér því toppurinn er orðinn svo síður...uss!! ef einhver er voða handlagin/n og getur klippt mig fyrir páska ( og litað :) ) þá væri það mjög vel þegið :) en það telst ekki með þó pabbi bjóðist til að ná í garðklippurnar sínar og klippa skottið af eins og hann orðar það....hann segir að hann vilji gera það frítt!!! en frekar safna ég toppi og geng á hluti eða eitthvað.......
nnugni at
17:36
30.3.04
ég þoli ekki þegar ég sé einhver andlit sem ég kannast við en man ekki hvaðan. ég fór út í búð áðan og þá mætti ég einhverjum strák í dyrunum sem ég kannaðist þvílíkt við. en jæja hvað með það...nú er ég búin að þrífa allt heima...enda komið soldið drasl....og þegar mar býr með kk þá eru þeir nú ekki þeir duglegustu við að þrífa....þó þeir eldi góðan mat...þeir halda sumir að eldavélin sé sjálfhreinsandi!!!
nnugni at
16:49
29.3.04
ég á nú að vera að gera uppl.tækni verkefni en það er nú bara skýrslan eftir þannig að ég bjó til þetta skemmtilega próf um mig sem þið getið tekið hérna hægra megin á síðunni....:)
nnugni at
14:22
28.3.04

djö...var búin að skrifa alveg helling :( en á föstudaginn var farið á djamm....að sjálfsögðu :) við vorum heima hjá stefaníu, ég og hildur og svo komu frúkka og imba. við fórum í einhvern drykkjuleik og oft reyndist boomið fólkinu erfitt ;) en svo fórum við í bæinn, hildur og stefanía fóru á hverfis en við hinar skruppum á nasa...ætluðum að hitta sædísi. það var frítt inn til miðnættis en við komum kl. eitt. einhvernveginn tókst mér að ljúga einhverri sögu að dyravörðunum og fékk frítt inn fyrir mig, frúkku og imbu :) klár stelpan!!! á laugardagskvöldið fór ég svo í saumó til frúkku.....og fékk gott að borða. takk fyrir mig freyja mín. vá hvað við gátum kjaftað mikið, eins og venjulega.....og nú er maður kominn með allt nýjasta slúðrið úr keflavík :) allavega nóg þangað til næst. eftir saumó skruppum við freyja á duus.....og já starfsfólkinu þar létti að vita að ég væri enn á lífi....enda er ég ekki búin að vera í keflavík í 2 vikur!
nnugni at
20:46
26.3.04

arrg! ég ætlaði að breyta um lúkk á síðunni minni....en tókst ekki betur upp en svo að ég fokkaði upp í síðunni fyrst....og fann svo ekkert flott....og eyddi svo mjög löngum tíma í að reyna að koma henni í stand aftur. uss.... en planið á morgun er víst að kíkja í bæinn (eða svo segir sædís mér), því hún fær loksins að fara í vísó í skólanum sínum og mar getur ekki farið heim eftir vísó. og imba ætlar meira að segja að kíkja með :) annars er ég nú dauðfegin að síðustu skóladagarnir eru núna. mar er orðin soldið mikið skólaleið. er einmitt að vinna að síðasta skilaverkefninu þessa dagana með henni beggu. en það er 35% verkefni í upplýsingatækni.....og fallega bullið!!! en þetta er alltílæ þar sem við erum svo geggjað klárar :) en held að það sé sniðugt að fara að fara að sofa.....hehehe fyndið hvernig hægt er að lengja hlutina sona (ætla að fara að fara sofa). svo að ég sofi ekki yfir mig eins og í morgun......
nnugni at
00:52
24.3.04

ég var að velta því fyrir mér í gær, afhverju fólk væri að pæla sona mikið í lúkkinu á hinu kyninu. mér finnst innri maðurinn skipta meira máli. ég meina ok mar sér þennan líka flotta gæja....en hver veit, eftir 20 ár þá gæti hann verið kominn með skalla og þvílíka bjórbumbu eða eitthvað....ég meina mar sér ekki fram í tímann þannig að fólk á að hætta að pæla í útlitinu!!!
nnugni at
17:53
22.3.04

ég held að ég hafi aldrei setið í tíma þar sem hefur verið farið jafnhægt yfir próf eins og í morgun. þannig var nú það að ég var í fjármálum fyrirtækja og kallinn að fara yfir prófið frá því í fyrra. þetta var allt krossapróf samtals 30 krossar. og hann sagði að við ættum að geta pælt vel í hverjum kross og reiknað dæmin, því maður hefði í rauninni 6 mín á krossinn (prófið er sko 3 tímar). en í 45 mín tíma tókst honum að fara yfir 3 krossa....??? í rauninni hefði hann átt að ná 7 og 1/2 kross!! held hann þurfi eitthvað að taka þetta til sín....uss!
ég sit hérna uppí skóla og er að gera ritgerðina fyrir þjó sem á að skila á morgun...er sko ekki að nenna því! enda hef ég aldrei fengið háa einkunn fyrir eina einustu ritgerð sem ég hef skrifað....og held að það verði ekki breyting á því núna. þannig að ég held að ég nenni ekki að eyða kvöldinu í etta líka. þar sem ég eyddi 4 tíma í hana í gær og er búin að nota 3 tíma í dag. enda er geggjað gott gluggaveður og þá langar mann að gera allt annað en að hanga inni að læra. enda er maður soldið feginn að lokaprófin byrji 1.apríl því þá er ekki komið eins gott veður og í maí.......
nnugni at
15:16

ég setti inn nokkrar
myndir úr vísó síðan á föstudaginn og úr kosningapartýi
visku
nnugni at
00:11
20.3.04

úff!!! þegar ég og stefanía vorum búnar að gera uppl.tækni verkefnið þá var haldið heim í fínni föt fyrir vísó. stefnan var tekin í sjóvá-almennar.....en auddað byrjaði ég á því að gera mig að
algjöru fífli þegar ég labbaði inn um dyrnar....og það var ekki einu sinni búið að rétta mér bjór!!! mér tókst að festa hælinn á tjámóu skónum mínum a.k.a. nornaskórnir, á mottunni þegar maður kemur inn. og stefanía gekk á mig því ég haggaðist ekki. þeir sem voru komnir inn fannst þetta voða sniðugt og fóru að hlægja að mér.....og ég eins og fífl að reyna að losa mig. hehehe en þetta er bara fyndið eftirá. þetta var bara fínasta vísindaferð og nóg af bjór. sjóvá-almennar voru meira að segja með "dj". haldiði að það sé flott? en eitt skil ég samt ekki....það eru alltaf einhverjar sona snittur eða eitthvað í vísó og þetta er allt e-ð svo ógeðslegt. eftir vísó keyrði rútan með okkur á broadway, þar sem spennan var rafmögnuð, því þar var kosningapartý
visku.
í kvöld ætla frúkka og imba að koma í höfuðborgina og við ætlum að kíkja e-ð út.....kaffihús eða e-ð (hmmm...kemur á óvart!). en best að fara að koma sér uppí skóla til að skila þessu tölvuverkefni.....
nnugni at
17:59
18.3.04

omg! ég og laufey skruppum niður í kb í austurstræti útaf fyrirtækjagreiningunni sem við eigum að skila á morgun. og þá var okkur sagt að greiningadeildin væri í borgartúninu. við fengum okkur kaffi á thorvaldsen, fyrst að við vorum komnar þarna og svo skruppum við í borgartúnið. þegar við komum þangað fengum við bara eitthvað skítkast....því greyið kallinn sem fær ekkert að ríða var í vondu skapi og vildi ekki tala né sjá fleiri nemendur úr hr. þannig að við hringdum í vin okkar í kb banka. og ákváðum að spjalla aðeins betur við hann og ég spurði hvort við mættum ekki kíkja á hann. hann sagði það í góðu lagi...og auddað vann hann í kb í austurstræti.....þannig að við fórum þangað og omg!!! ekkert smá sætur þessi gaur sem við vorum búnar að vera að tala við í gegnum símann.....við áttum báðar erfitt með að einbeita okkur að því að heyra svörin við spurningunum sem við vorum með því hann var svo fallegur!!! en auddað leiddu augun okkar annað og tókum við báðar eftir að hann var ekki með giftingarhring......:)
nnugni at
20:38
17.3.04

f**k...ég var að keyra heim úr baðhúsinu áðan og var að hringja....og þá kemur löggan á móti mér á mótorhjóli og sá mig.....hún keyrði samt aðeins áfram og svo snéri hún við. ég bara shit maður þar sem ég var að fylgjast með henni í baksýnisspeglinum þannig að ég flýtti mér eitthvað og fór þvílíka krókaleið....og ef hún hefur verið að fara að elta mig þá fann hún mig allavega ekki :)..............hehehe ég er svo klók!!!
nnugni at
21:14
16.3.04

jæja loksins lét ég verða af því að fara aftur í baðhúsið.....eftir að þetta helv. fífl keyrði á mig. en já ég fann ekkert til í bakinu. þannig að nú er bara fitness á næsta leiti ( jeright ). annars mest lítið að gera nema fullt af verkefnum. það eru ekki nema 2 vikur eftir af skólanum...shit!!! en á föstudaginn verður kosningavaka visku og síðasta vísindaferðin....og stefnan er auddað að skella sér :)
nnugni at
23:15
afhverju er alltaf erfiðast að ná frostinu af framrúðunni???
nnugni at
14:57
15.3.04

djí...get ekki beðið eftir páskafríinu. er sko þokkalega að fá ógeð á skólanum....þó þetta verði nú ekki mikið frí þessir 5 dagar sem við fáum fara í að lesa fyrir prófin. ég skrapp á duus á laugardagskvöldið með stelpunum. við ætluðum nú ekki að vera lengi. ég ætlaði að fá mér einn bjór....sem varð að öðrum...hehehe og só on... þannig að mín mætti heim rúmlega hálffjögur og fór á fætur snemma til að mæta enn einu sinni í íþróttahúsið......enda var sko sofið vel síðustu nótt. það þurfti nebbnilega að bæta upp tapaðan svefn helgarinnar með því að skrópa í stofnun og rekstur....en það er nú bara gott mál. þetta eru ógeðslegir tímar!!!
nnugni at
23:21
13.3.04

ojbara er ýkt þreytt því ég er búin að vera í íþróttahúsinu allt of mikið, allan gærdaginn og í allan dag v/íslandsmóts unglinga og svo líka á morgun. en ég er nú búin að geta glápt á
mr. handsome...hehhe ;) þannig að þetta er nú ágætt. hef ekki tíma fyrir mikið núna.....þannig að hmmm...já meðan ég man til hamingju með afmælið amma, systa og ingvar!!! en verð að rjúka....
l8r
nnugni at
21:06
11.3.04

obboslega hef ég það gott núna. er uppí rúmi með laptopinn og með nýlagað kaffi :) og búin að sofa í rúma 10 tíma.....ekki slæmt þetta letilíf. en nú er að ná þessari leti, sem er búin að vofa yfir manni í 2 vikur, í burtu. og drulla sér til að gera eitthvað. hmmm.....ekki mikið að gerast hjá mér núna...jú annars anna margrét (my boss) hringdi á mánudaginn og bauð mér geðveikan vinnutíma í sumar :) sem ég er bara ýkt ánægð með... hún vildi nebbnilega fá spes manneskju á þennan vinnutíma (þeir sem eru tregir, þá vildi hún helst fá mig, var bara ekki viss hvort ég vildi taka þessu, eða fara í gamla ömurlega vinnutímann frá því síðasta sumar).
svo er verið að skipuleggja ferðalög sumarins. þó að það sé erfitt en það ræðst allt af á hvorri vaktinni ég, sædís og freyja verðum. vona að við verðum allar á sömu dögum....(miklar líkur á því, af því engin okkar er að vinna á sama stað). en nenni þessu ekki núna.......reyni að koma með eitthvað meira krassandi næst! ;)
nnugni at
13:00
8.3.04
ég fór á
sólsting í gærkvöldi með litlu frænkur mínar! já ég veit ég er ýkt góð stóra frænka :) þetta er bara soldið skemmtilegt leikrit. fyrir þá sem vita ekki, þá fjallar það um útskriftaferð verslónema og vandræðin sem þau lenda í. það var svo margt í þessu sem minnti mig á útskriftaferðina mína. svo í hléinu skrapp ég á klóstið, þegar ég kom fram sögðu frænkur mínar mér að einhverjir af litlu krökkunum héldu að ég væri í leikritinu. væri sem sagt einn af dönsurunum. heheh alltaf fréttir maður eitthvað nýtt! vá ég sit upp í skóla og er búin að vera að pæla hvort að svitalyktin sem ég finn sé af mér. en tók eftir að gaurinn sem situr fyrir aftan mig hafði skroppið eitthvað í burtu og þegar hann kom aftur kom líka þessi gífurlega fýla með honum. þannig að hjúkket þetta er ekki ég. :) en þetta verður eitthvað lítið og ómerkilegt núna. þarf að halda áfram að læra fyrir þjó prófið....
l8r
nnugni at
14:53
6.3.04

jæja
myndirnar komnar inn :) þurfti reyndar að fá mér nýtt albúm því það var svo lítið pláss í hinu. reyndar er það asnalegt að það raðast inn í albúmið í stafrófsröð. ég þarf að finna úr því og svo þarf ég að flytja hinar myndirnar yfir....
nnugni at
19:35
uss mar.........ég fór á árshátíðina í skólanum í gær og þetta var geggjað flott! æðislegur matur og soldið drukkið ;) en ég vissi ekki að sjávarréttarsúpa væri svona góð! og auddað var svo afhent knútinn. en við vorum þarna á árshátíðinni til 3 held ég....eða hálffjögur. æ ég man það ekki. og þá fórum við með taxa niður í bæ. skruppum á hverfisbarinn og þar var einhver stokker sem mér, stefaníu og hildi leist ekkert á. eftir hverfis fórum við niður á lækjartorg og þar hitti ég engan annan en magga bróður hennar imbu. hann sagði mér að imba væri að koma að ná í hann. ég hringdi í hana og hún var nú ekki ánægð að þurfa að keyra í bæinn til að sækja bróður sinn þegar klukkan var að verða 6. en jæja.......tók eitthvað af myndum í gær. set þær örugglega inn í dag ef ég nenni...
nnugni at
13:23
4.3.04

talandi um að vera gleymin og rugluð þessa dagana! ég fór í skólann í gær (á bílnum). en síðan fór ég heim úr skólanum með sædísi af því ég hélt að sverrir væri á bílnum. en svo í gærkvöldi rétt fyrir 2 þá spurði ég sverri hvar hann hefði lagt bílnum því ég sá hann ekki fyrr um kvöldið þegar ég kom heim. þá sagði hann ,,ert þú ekki á bílnum?"....þannig að ég
gleymdi bílnum í skólanum. svo nennti ég ekki í skólann í morgun, ég ákvað bara að mæta í uppl.tækni kl 12. en það var enginn í stofunni þegar ég kom. þegar hún var orðin 10 mín yfir þá kemur ein stelpan sem er með mér í faginu. ég spurði hana hvort að það væri ekki tími og hún sagði jú það held ég. og ég bara hvar eru allir? þá sagði hún byrjar tíminn ekki kl 1? þannig að ég mætti klukkutíma of snemma í skólann. ég held að ég þurfi að fara að taka bleiku töflurnar aftur..........
nnugni at
19:23
3.3.04

eftir mikið rölt í kringlunni með sædísi og guggu. var haldið í bíó ég fór að sjá myndina along came polly með jennifer aniston og ben stiller. þetta var alltílæ mynd....maður hélt að hún væri fyndnari. hún var soldið slöpp á köflum en annars alveg ágæt afþreying. við fórum í laugarásbíó og þegar það var orðið dimmt í salnum og auglýsingarnar að byrja. tók ég eftir því að það stóðu 2 manneskjur stutt frá okkur og önnur byrjaði að vinka. ég bara glápti og hugsaði hver er að vinka hverjum? og síðan heyrði ég að önnur röddin sagði þarna er ingunn! og þá fattaði ég að það var verið að vinka mér....lýsir bara hvað ég get verið treg. en þarna voru komin jóna og tobbi. þú veist ég meina maður hittir keflvíkinga allsstaðar!!!!
nnugni at
22:31
2.3.04

ég myndi nú ekki vilja fljúga með
þessu flugfélagi!!!
nnugni at
13:24
1.3.04

ég var að fatta að það er komið 1 ár síðan hinn frægi
íslenski aðall lék í bíómynd til að fjármagna útskriftaferðina!!! en já við lékum bakgrunnsleikara í þýsku sjónvarpsmyndinni
"it´s worth living" þannig að ef einhver sér hana á bæjarbókasöfnum.....þá mæli ég eindregið með henni og horfið á fólkið í bakgrunninum :) og látið mig vita, mig dauðlangar að sjá hana. því þessi mynd var bara snilld. hver man ekki eftir valla sem var látinn í ógeðslega skyrtu og svo græna ljóta síða dúnúlpan. eða öxlin hans
tomma hehehe. það var ekkert smá sem við gátum hlegið að henni. hmm........ég er á bókasafni, reyndar í skólanum ég ætti kannski að tjékka hvort að þau eigi einhverjar myndir. en annars þoli ég voða lítið af tölvutengdu drasli. var að prenta út glósur áðan og gleymdi að láta 6 saman á blað og það komu endalaust mörg blöð!!!!
nnugni at
10:01