[ nnugni ]

ég er 25 ára keflavíkurmær og er viðskiptafræðingur að mennt útskrifuð frá HR júní 2006.
ég bý núna í breiðholtinu og er að vinna í landsbankanum


[ fólk ]

frúkka
sverrir
þórunn katla
imba
aðallinn
ólý
eva björg
birna ýr
hildur maría
berglind óskars
ragnhildur ósk
steinunn
eva hrund

[ hr ]

finnur
heiðdís
hr-skvísur
laufey
lísa
sigrún helga
sigrún
stella björk
þórdís

[ smáfólk ]

auðunn fannar
helena
katla dimmey
tómas freyr og haraldur daði
tryggvi snær

[ tenglar ]

arthúr
frítt sms
gud.is
hagstofan
kauphöllin
keflavík
landsbankinn
morgunblaðið
seðlabankinn
viðskiptablaðið
víkurfréttir

[ rotterdam ]

herbergið mitt
skólinn
veðrið

[ myndir ]

stelpudjamm 25.05.2007
djamm 04.05.2007
afmælið mitt
útskrift sædísar
föstudagsfyllerí
kosningakvöld

[ gamalt ]

janúar 2004
febrúar 2004
mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
desember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
maí 2008
júní 2008
júlí 2008


mailið mitt og msn


templates by rachel

30.6.05

einkennileg lyfta


nnugni at 21:53


hahahahha þetta er bara fyndið!!!


nnugni at 21:48


það sem er óþolandi við júní mánuð er að ég á aldrei pening þá.....mar er staurblönk eftir veturinn....
....en á morgun er betri dagur....því þá er payday :)


nnugni at 20:43


kíkti á smá tjútt síðustu helgi með london gellunum....ýmis leyndarmál komu í ljós og sum þeirra verða aldrei nefnd aftur.....hehehe
komst að því að drykkjuþolið mitt er alveg farið þar sem að ég tók mér pásu frá áfengisdrykkju í heilan mánuð!!
það þýðir aðeins eitt.......ég þarf að byggja það upp aftur ;)

stefnt er að því að reyna að fara í smá ferðalag í júlí og það ætti allt að koma í ljós á morgun eða hinn hvort af því verður.....jibbý!!!


nnugni at 01:11

28.6.05

ég hef ekkert að segja þessa dagana....


nnugni at 18:59

23.6.05

ef fólk ætlar að ná sambandi við mig.......ekki senda mér bréf í pósti....ég eyddi dágóðum tíma í dag í að opna póst frá árinu 2004.......
í einu umslaginu var e-ð sem ég þurfti að fylla út og átti að senda til baka í sambandi við vinnuna mína í fyrra......úpps!!!


nnugni at 19:16


um daginn dreymdi mig draum.....ég á alveg obboslega sniðuga draumaráðningabók....þannig að ég fletti upp á þeim stikkorðum sem ég mundi og útskýringarnar pössuðu sumar mjög vel við....

grænt: grænn litur í draumi merkir ferðalag eða viðskipti við einhvern á fjarlægum stað

ólétta: dreymi konu að hún sé ólétt gæti hún átt von á tvíburum. sé dreymandinn ung, ógift stúlka ætti hún að vara sig á þeim pilti sem hún er að spá í. hann gæti mögulega verið að nota hana og reynst brokkgengur

pillur: pillur í draumi eru fyrirboðar ferðalaga til útlanda og fjölda ánægjulegra stunda í tengslum við það

lyfta: lyftur eru tákn óvissu. dreymi menn að þeir fai upp í lyftu mun þeim seinnilega ganga vel í lífinu en að öllum líkindum ekki fari lyftan niður

hræðsla: séu menn hræddir í draumi en viti ekki hvers vegna munu þeir ekki þurfa að óttast neitt. hræðist menn eitthvað dularfullt í draumi munu þeir finna fyrir mikilli gleði í vöku. þeir gætu t.d. erft einhvern eða glaðst yfir velgengni barna sinna. finni menn fyrir ofsahræðslu í draumi ættu þeir að vara sig á fólki sem gæti haft af þeim það sem þeim ber

blökkumaður: dreymi menn þeldökkan, ókunnugan mann er það fyrirboði afreka og velgengni

leikfang: leikföng í draumi benda til þess að fjölskylda dreymandans sé mjög gáfuð og njóti velgengni


nnugni at 18:02


hannes vinur minn er svo gáfaður að hann var beðinn um að koma í ísland í bítið að tala um bs ritgerðina sína......pælið í því!

þeir sem misstu af viðtalinu í gær geta séð það hér.....


nnugni at 14:47

21.6.05

í gærkvöldi beið ég og sigrún í fokking 2 tíma eftir síðustu vélinni........og það kom ekki einn einasti kúnni....ekkert smá svekkjandi!!!


nnugni at 23:14

20.6.05

vá hvað ég var að fá geggjaða viðskiptahugmynd.....en því miður get ég ekki sagt frá henni......ætti samt kannski að gera það...ekta ég að vera búin að gleyma henni á morgun.....en nei ég held henni fyrir mig..verð bara að reyna að muna, að muna, að muna!!!!!!


nnugni at 23:34


áður en þið lesið lengra þá verðið þið að rifja upp færsluna sem var 20 maí.....því þetta er hálfpartinn framhald af henni....

....nú jæja það var kellan sem spurði mig hvort ég væri tælensk....svo um daginn þá segir hún aftur við mig: "herru...ertu tælensk?"
og ég hugsaði með mér.....ohhh er hún byrjuð á þessu aftur...
og ég svara: "nei"
þá segir hún: "nei af því þú ert svolítið svoleiðis"
ég hugsa með mér hvað ætli hún meini með því.....en þurfti ekki að bíða lengi eftir svari.......því þá kom hún með rúsínuna í pylsuendanum!
hún: "þú ert dálítið skrýtin!"


nnugni at 17:15

19.6.05

engin furða að ég geri ekki annað en að sofa og vinna....ég var að leggja saman hvað ég hef unnið mikið síðasta mánuðinn...þ.e. 16.5-15.6 og í ljós kom að ég vann 208 tíma....
er sem sagt búin að vera í 130% vinnu.....
en sem betur fer er þetta að fara að minnka núna....þannig að mar getur kannski farið að gera e-ð skemmtilegt....þannig að það verði e-ð áhugavert að lesa hérna...


nnugni at 00:41

15.6.05

stundum getur verið erfitt að taka ákvarðanir um einföldustu hluti...sem er náttlega bara fáránlegt!
lenti í því í dag að ég gat ómögulega valið mér gloss....prófaði nokkra en gat engan veginn ákveðið mig....það ætti nú ekki að vera erfitt....þannig að niðurstaðan varð sú að ég keypti ekki neitt...
aftur á móti gat ég tekið ákvörðun um að flytja til hollands og búa þar í 1 önn....díses...


nnugni at 01:07

11.6.05

fjörugt laugardagskvöld hjá mér.......er að vinna til 2 í nótt.....á meðan er alveg hellingur af fólki á djamminu því margir voru útskrifaðir í dag.....til hamingju með það öll sem voruð að útskrifast!!!
hugsa sér að nú sé aðeins 1 ár í að mar verði viðskiptafræðingur!!!
því núna er minn hópur orðinn næsti útskriftarhópur í skólanum........finnst ég vera nýbúin að vera útskriftarnemi í fs.....en tíminn flýgur!

en ég er búin að taka stóra ákvörðun sem breytir ýmsu hjá mér..........já ég ætla að skella mér til hollands í haust. nei ég er ekki hætt í skólanum heldur er ég að fara út sem skiptinemi....

það verður ekki aftur snúið því ég er búin að fylla út allar umsóknir, búin að fá erasmus styrkinn og ég er búin að kaupa flugfar....jæks!!!

brottför eftir 77 daga....


nnugni at 22:12

8.6.05

það er alltaf talað um eldri borgara.....en ef e-ð af þessum gamalmennum á ekki heima í rvk. heldur úti á landi........af hverju er það þá ekki eldri sveitarar???


nnugni at 18:28

7.6.05

var aðeins að taka til í tenglunum og henda út letibloggurum.......ef ég tók þig út og þú ert ósátt/ur.......bloggaðu þá og ég hendi þér aftur inn ;)

annars sit ég bara hérna í vinnunni og er að bíða eftir að fleiri vélar komi inn.....og svo er náttlega iron maiden vélin að fara út á eftir....þá mun mar sjá e-n celeb....

var að komast að snilldarsíðu fyrir fólk sem leiðist í vinnunni sinni.....enjoy!


nnugni at 23:36

6.6.05

hildur á ammæli í dag.....22 ára stelpan...til hamingju með það!!!


nnugni at 15:19

5.6.05

þessa dagana geri ég ekki annað en að sofa og vinna.....en það verða fátækir háskólanemar að gera til að hafa efni á að lifa!
svo styttist í að mar fari út......aðeins 83 days to go!

þar sem að voða lítið hefur gerst hjá mér síðustu daga þá er betra að skrifa ekki neitt.....heldur en e-a ömurlega leiðinlega færslu sem er ekki um neitt...


nnugni at 01:30

1.6.05

jæja þá er það komið svart á hvítu......stelpan búin með 2 ár í háskóla!
fékk síðustu einkunnina í gær....og hún var bara mjög fín...allavega er ég sátt....
þannig að 63 ein í höfn og aðeins 27 to go!!! :)


nnugni at 19:06