30.6.04

jæja mætt einu sinni enn í vinnuna til að afgreiða þessa
crazy útlendinga!!! held samt að það hafi aldrei liðið sona margir dagar á milli færsla :s búin að vera að vinna á fullu á báðum stöðum...en það er alltílæ útileigan er eftir 2 daga :) sem minnir mig á það að ég þarf að fara að búa til tossalista....m.a. að fara í mjólkurbúðina og bónus. en ætli davíð oddsson versli í bónus???
nnugni at
10:44
25.6.04

meira hvað það er lítið að gerast hjá manni þessa dagana :( ekkert nema vinna og vinna...en það er alltílæ er að fara í bíó í kvöld....:) jú annars ég afgreiddi einn meðlim deep purple í dag...þessi sem er á myndinni..veit ekkert hvað hann heitir enda ekki heitasti aðdáandinn þó þeir séu alveg ágætir.
nnugni at
18:39
21.6.04

hmm..fékk skrýtið sms í vinnunni í dag....þar sem var verið að spurja mig um helgina en sá sem sendi það gleymdi að skrifa nafnið sitt :s ég skora á þessa manneskju að senda mér aftur sms svo ég viti hver þú ert...en lítið að frétta..er varla búin að gera annað en að vinna og sofa yfir tv-inu. hehe peningurinn er fundinn og ég alsæl...þurfti loks að taka til í öllum skúffunum mínum...þannig að
árstiltektinni á herberginu mínu er næstum lokið :) það er meira hvað mar er orðinn eftirsóttur bankastarfsmaður...mar var barasta boðin vinna í sparisjóðnum í kef...heheh reyndar frúkku líka ;) en ekki meir um það hér
nnugni at
01:05
19.6.04

nú sit ég bara hénna í vinnunni og er að bíða eftir að fara heim....mínúturnar líða sko ekki neitt. en í gærkvöldi var ég í
"smá" partýi hjá frúkku minni. og greyið frúkka..hún leyfði e-m gaur sem var að drepast að liggja inní herberginu sínu...og svo þegar hún kemur aftur þá er hann barasta búin að
æla yfir allt rúmið hennar...jakk!!! svo var haldið á duus...og það var nú e-ð lítið af fólki í bænum..uss slakt þetta lið. mín kom heim uppúr 2 og mætti svo
"hress" í vinnuna kl 5.30. en ég er í solitlum vandræðum..sko málið er að ég átti
5000 kall sem ég lét á e-n geggjað góðan stað inni hjá mér...ég er soleiðis búin að leita og leita en finn hann ekki...það fer svo í pirrurnar á mér að vita að ég eigi 5000 kall inni hjá mér og geta ekki fundið hann...en núna ætla ég að halda áfram að fylgjast með klukkunni og vona að vaktstjórinn fari að mæta í vinnuna svo ég geti farið heim að
sofa!!!!
nnugni at
08:26
17.6.04

óþolandi sona morgunhresst fólk sem mætir í ræktina og er bara ,,góðan daginn!!" arrg mar er hálfsofandi að reyna að detta ekki af hlaupabrettinu og þá kemur þetta fólk inn...hmmm...já það er víst 60 ára lýðveldisammæli í dag..til hamingju með það allir íslendingar...en ég er bara að vinna marga marga daga núna og sé ekki í frí fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku :s en svo er verið að plana útileiguferð fyrstu helgina í júlí...ekki slæmt það :) spurning bara hvert verður farið??? uppástungur er vel þegnar :)
nnugni at
01:17
13.6.04

í gærkvöldi fæddist lítill prins :) hann var 15 merkur og 51 cm. þórunn katla og jón ragnar til hamingju með litla ljósið ykkar!!!
nnugni at
11:15
11.6.04

mér finnst að fólk þurfi að gangast undir próf áður en það fær leyfi til að ferðast...sona próf hvort það geti reddað sér erlendis. og ef það getur það ekki...þá verður það að ferðast með fylgdarmann sem getur þá reddað manneskjunni.....sérstaklega í bönkum ;)
nnugni at
14:19
10.6.04

einn daginn fékk maðurinn minn skyndilega þá köllun að fara að sinna heimilisstörfunum og í einhverju bjartsýniskasti ákvað hann að þvo stuttermabolinn sinn. hann var varla kominn inn í þvottahús þegar hann kallaði á mig "á hvaða stillingu set ég þvottavélina elskan?" "það fer eftir því hvað stendur á bolnum" kallaði ég til baka. "húsasmiðjan" gargaði hann...og svo segja þeir að ljóskur séu heimskar.....
nnugni at
20:38

arrg!!! ég er að verða geðveik á þessum myndum...er búin að eyða um 40 mínútum í að bíða eftir að þær hlaðist upp á þessa síðu....en síðan birtast þær ekki og ég þarf að gera þetta aftur. en hver hefur sko ekki lent í því að fara óvart í úthverfan sokk eða snúa bolnum eða peysunni öfugt??? ekkert mál..getur komið fyrir hvern sem er. en um daginn var ég að fara í perluna að brenna...og mín skellti sér öfugt í íþróttabuxurnar og fattaði það þegar hún var komin í gym-ið..það var soldið neyðó að fara inn í búningsklefa bara til að sjá til þess að rassvasinn væri aftaná en ekki framaná..en þetta eru daglegir viðburðir hjá mér...;)
nnugni at
00:11
8.6.04

hvað er málið??? sko nú er sumarið komið og mar á sko ekki að vera kvefaður, hvað þá veikur!! mér tókst að næla mér í þetta fína kvef í sumó....og var sko ekki hin hressasta í vinnunni í dag. klukkan orðin meir en hálfþrjú og ég enn á fótum....er það videó eða??? ætla aðeins að pæla í því....ahhh ég veit
friends, my favorite :) sko ef ég er ekki friends aðdáandi dauðans þá veit ég ekki hvað!!! myndirnar eru samt enn á leiðinni..hendi þeim inn eftir vinnu á morgun eða kannski á miðvikudaginn. og svo kemur brósi barasta heim frá króatíu á morgun...damn þá missi ég bílinn
nnugni at
02:41
7.6.04

vá djö var ógisslega gaman uppí bústað....allt of mikið af bjór þarna. nnugni prófaði meira að segja að bonga!!! og ekki get ég sagt að það hafi tekist vel í fyrstu tilraun....en í annarri þá var þetta allt að koma ;) mikið stuð var á fólkinu en það eina sem skemmdist var blómapotturinn sem ívar hélt að gæti haldið sér uppi meðan hann horfði á hina geysivinsælu bongkeppni. en þess má geta að það þurftu allir að bonga. hmm...skandalar verða ekki settir hér inn...no thank you. en myndirnar mínar eru væntanlegar innan tíðar :)
nnugni at
11:02
5.6.04

hmm.....já það var víst verið að kvarta undan bloggleysi...uss ekki nógu gott. en sem sagt ég hef haft í nógu að snúast undanfarið...er bæ ðe vei komin með aukavinnu í hólmgarði...þannig að þá ættu heildarlaunin mín að skána :) en það er sko búið að vera
crazy í vinnunni síðustu 2 daga og það eru sko engar ýkjur. var að koma heim af duus (kemur á óvart ;)) og er að reyna að pakka e-u niður fyrir sumóinn á morgun...en er viss um að ég gleymi e-u...eða nei, ég
veit að ég gleymi e-u. ég gleymi nebbnilega sko
alltaf e-u. hlakka geðveikt til að fara það verður sko brunað eftir vinnu á morgun...ég kom mér undan því að keyra...þannig að ég get opnað sona eins og einn öllara uppúr 4 á morgun :) en best að halda áfram að týna e-ð drasl með áður en ég fer að lúlla....svo er bara að vona að mar geri ekki e-n skandal...jeright!!!!
nnugni at
01:43
1.6.04

kíkti aðeins í rvk. á kaffihús í gærkvöldi með frúkku og imbu...þar sáum við
loga bergmann eiðsson og gelluna hans. síðan á leiðinni heim ákváðum við að koma við í öskuhlíðinni....við vorum að leita að
hommum...heheh. þannig að við fórum njósnaleiðangur þar....við slökktum ljósin og alles....en bömmer við fundum enga homma :(
ég var að hringja inn í launadeild í morgun til að fá útskýringu á orlofinu mínu....og það er sko alveg óþolandi þegar það er alltaf verið að senda mann til e-s annars og annars...þannig að á endanum er mar kannski búin að segja sömu söguna 5x!! ég lenti í þessu í morgun...og svo er náttlega þessi ógisslega leiðinlega
hold tónlist. jæja best að halda áfram að leita sér að aukavinnu þar sem að mar getur víst ekki fengið neinar bætur nema mar hafi unnið 100% vinnu í eitt ár....sem er ekki nokkur leið fyrir skólafólk!!!
nnugni at
12:24