31.12.07
jæja hér ber að líta hluta af því sem stóð uppúr á árinu! :)
janúar: sædís vinkona útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá hr og fór að vinna með mér í lí.
sextugsafmæli pabba
febrúar: afmæli 3 amigos...í því fólst 2 mögnuð partý fyrstu 2 helgarnar í feb og þriðju helgina var farið í hina árlegu bústaðaferð...5 sprækar stelpur skelltu sér þangað...ekki verður farið út í það sem gerðist innan veggja bústaðarins en 2 þurftu að fara á laugardeginum og þá voru 3 eftir...betur þekktar sem 3 amigos...og tókst einum af þeim að læsa þær úti í heita pottinum kl.3 aðfaranótt sunnudags í frosti og kulda! við tóku skrautlegar aðferðir við að reyna að komast aftur inn í bústaðinn á bikiníi einum fata!




mars: amma mín varð 85 ára og var haldin mögnuð veisla á hótel holti...mjög vel heppnað kvöld...
einnig hófst leit að væntanlegri eign nnugna....og voru fjölmargar íbúðir skoðaðar

apríl: eftir að hafa skoðað fleiri íbúðir í viðbót var gert kauptilboð í þá réttu....annað tilboð var einnig í þessa sömu íbúð á þessum tíma....en svo fékk ég símtal þar sem mér var óskað til hamingju með íbúðina...mikil gleði!
freyja kom heim úr heimsreisunni
maí: skrifað undir kaupsamning.
stelpuhittingur hjá ólý þar sem var fundið upp á snilldardrykkjuleik yfir ungfrú ísland sem var í sjónvarpinu....magnað fyllerí...

júní:fór í óvissuferð með vinnunni, þar sem var ratleikur, góður matur og nóg af áfengi....áætluð brottför aftur til rvk var um 11-12....en við fórum ekki aftur fyrr en um 1 að mig minnir....því það mátti ekki fara fyrr en við vorum búin að klára allt áfengið :)
fékk íbúðina mína afhenta :)
3 dögum seinna tóku við flutningar úr laugardalnum í gettóið...næstu dagar fóru í að mála og koma sér fyrir....málningarvinnunni er lokið...en stelpan er enn að koma sér fyrir og verður að því í soldinn tíma í viðbót....enda fullkomnunaráráttan að drepa hana....
myndavélin mín dó!
júlí:ekki mikið um að vera þá....en tók að vísu vikufrí í vinnunni....sem fólst í því að gera absolutely nothing....það var ljúft!!
ágúst:útilega með 3 hressum stelpum....eftir mikla keyrslu hingað og þangað á vesturlandinu...fundum við hina fullkomnu staðsetningu að því er við héldum...en reyndist svo hið mesta rokrassgat!! vorum lengi að komast af stað í útileguna því það var alltaf verið að snúa við því hitt og þetta gleymdist....stelpan var orðin soldið pirruð að þær hefðu ekki verið betur skipulagðar en þetta.....en þegar komið var á staðinn og það átti að byrja að tjalda...kom í ljós að fullkomna stelpan gleymdi úlpunni sinni!!!
fór svo í vikuferð með familiunni til jótlands....þar sem dvalið var í glænýju sumarhúsi sem var mjög vel búið og sprangað um á bílaleigubíl....skoðuðum alveg helling og fórum 2x yfir til þýskalands.


september: ljósanóttin var á sínum stað....eldað með vinunum eins og venjan er....rölt í bæinn á flugeldasýninguna og svo aftur heim í partý og djamm fram eftir nóttu.
byrjaði að æfa með bh
hittingur með bad genginu úr kef


október:hellingur af innflutningspartýum...ingunn's entertainment company komst á laggirnar ;)


nóvember:magnað búningapartý hjá laufeyju vinkonu....myndirnar sem eru á facebook tala sínu máli...
jólahlaðborð hjá landsanum....landsapartýin standa fyrir sínu og þetta var engin undantekning!!
desember:tókst að vera snemma í því að kaupa gjafirnar og pakka þeim inn...fyrsta skipti í langan tíma þar sem mar er ekki hlaupandi á milli búða á þorláksmessu...nokkuð góður árangur.
fékk fullt af flottum jólagjöfum....er mjög ánægð með náttborðin mín sem eru matching...þannig að það má segja að svefnherbergishlutanum af íbúðinni minni sé lokið....einnig eru komnar upp hillur og myndir í stofuna...þannig að hún er líka ready....þangað til einhvern tíma seinna þegar ég hef efni á að kaupa mér borðstofuborð...aðrir hlutir þurfa að hafa forgang....
ný myndavél :)
sem er frábært fyrir árið 2008...þar sem að ég er viss um að það muni toppa þetta ár....enda er stefnan tekin á að láta það toppa 2007....
veit þó um nokkra hluti sem munu gerast 2008....en það kemur bara hér inn með tímanum...


að lokum langar mig að óska ykkur gleðilegs nýs árs og farið varlega um áramótin!!
nnugni kveður árið 2007!!!
nnugni at
00:10
30.12.07
nú þegar árið er að verða búið fer ég að hugsa um það sem gerðist á árinu sem er að líða...og er einmitt að fara að setja saman pistil um það sem mér finnst merkilegt á árinu...mér finnst alveg magnað að í byrjun hvers árs hefur mar ekki hugmynd um hvað árið mun bera í skaut með sér....allavega ætla að halda áfram með mitt árlega yfirlit og það mun koma hér inn 31.12.2007...jafnvel rétt eftir miðnætti í kvöld ;)
nnugni at
15:06
28.12.07
það er oft svo margt sem mig langar að koma frá mér en finnst vera gjörsamlega óviðeigandi hér þar sem að mar veit aldrei hver er að njósna um mann...eins og ég kalla það!
hvað er til ráða?
nnugni at
00:21
27.12.07
gleðileg jólin!!
örugglega allir hættir að kíkja hingað...það er svo langt síðan síðast. ég er allavega búin að eiga góð jól...allavega segir vigtin mér það...auka 2 kíló komin...en það er alltílæ :)
fékk fullt af flottum gjöfum og ég er ógó ánægð með þær allar :)
fékk m.a. myndavél frá m og p :) þannig að nú fara að koma myndir hingað inn reglulega!!
á morgun er það svo bara vinnan á ný...þarf að vera megadugleg svo ég nái að klára árið...
svo þarf ég að fara að byrja að vinna í áramótapistlinum mínum...en það er fastur liður á þessu bloggi!
vona að jólin hafi verið góð hjá ykkur...
over and out!
nnugni at
00:18
5.12.07
imba er búin að vera að segja mér að koma með sér í afró í soldinn tíma...ég hef alltaf neitað...þar sem að ég er svo hryllilega taktlaus....en í kvöld lét ég tilleiðast!
ég get sko alveg sagt að kellurnar í baðhúsinu fengu miklu meira fyrir peninginn í kvöld...þær fengu að vera viðstaddar sýninguna...."ingunn fer í afró"...held að þetta segi allt sem segja þarf...
...annars er ég farin í jólafrí frá blogginu...
gleðileg jól allir saman!!!
nnugni at
21:41
tíu skýringar sem hægt er að gefa þegar yfirmaðurinn kemur að manni
sofandi við skrifborðið:
10. þær sögðu mér í blóðbankanum að þetta gæti gerst.
9. þetta er bara kortérs orkublundur eins og sagt var frá á
stjórnunarnámskeiðinu sem þú sendir mig á.
8. vá! ég gleymdi að setja tappann aftur á tipp-exið.
þú hefur líklega komið rétt á elleftu stundu.
7. ég var ekki sofandi! ég var að íhuga verkefnaviðmiðin og úthugsa nýjan
rannsóknarramma.
6. ég var að prófa nýju slef-vörnina á lyklaborðinu mínu.
5. ég var í flókinni jóga-æfingu til að losa mig við streituvald
sem orsakast af vinnu-umhverfi mínu.
4. fjárinn, af hverju varstu að trufla mig?
ég var rétt að finna lausnina á stærsta vandamáli fyrirtækisins.
3. kaffivélin er biluð ...
2. það hefur einhver sett koffínlaust kaffi í vélina.
1. ... í jesú nafni, amen
nnugni at
13:55
4.12.07
það er ástæða fyrir því að ég takmarka
yfirvinnuna mína.....
nnugni at
10:04
2.12.07
ég, sædís, imba og laufey vorum að búa til jóladans...þið getið séð hann
hér...samt finnst mér laufey vera soldið úr takt ;)
nnugni at
19:38